26.05.1941
Neðri deild: 67. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 925 í B-deild Alþingistíðinda. (2357)

128. mál, sauðfjársjúkdómar

Bjarni Ásgeirsson:

Ég tel ekki ástæðu til, að landbn. þurfi að ræða sameiginlega um þær breytingar, sem gerðar voru á frv. í Ed., né heldur brtt. þá, sem hv. þm. N.-Þ. hefur borið fram. N. mun ekki telja sérstaka ástæðu til að hrekja málið enn milli deilda. Og ég vil heldur leggja móti því, að skrifl. brtt.samþ., þar sem ég tel hana óþarfa. Þótt horfið yrði að því að bæta mönnum upp aukakostnað af slíkum flutningum, þarf ekki til þess neinn viðauka við það, sem þegar stendur í 5. lið 27. gr. Þetta er aðeins framkvæmdaratriði, sem nægileg heimild er fyrir, ef það þykir sanngjarnt á annað borð.