23.05.1941
Sameinað þing: 19. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1282 í B-deild Alþingistíðinda. (75)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Sigurjón Á. Ólafsson:

Herra forseti! Á öndverðu þingi flutti Alþfl. till. til þál. um orlof sjómanna og verkamanna, og fór fyrri umr. fram 22. apríl. Vil ég mælast til þess við hæstv. forseta, að hann hafi áhrif á hv. allshn., að hún skili áliti hið fyrsta, og þar sem heill þingflokkur á hér hlut að máli, vænti ég, að n. afgreiði málið án tafar.