10.05.1941
Efri deild: 57. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í B-deild Alþingistíðinda. (827)

9. mál, gjaldeyrisverslun o.fl

Viðskmrh. (Eysteinn Jónsson) :

Í tilefni af þeim viðræðum, sem áttu sér stað í hv. fjhn.

þessarar deildar samkv. ósk hv. þm. Vestm., þá vil ég láta þess getið, að svo hefur um samizt, að ákvæði munu verða sett um það, að eigendur bundinna punda megi nota þau til að kaupa skip handa sjálfum sér og vélar í skip sín.