09.07.1941
Sameinað þing: 3. fundur, 57. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í D-deild Alþingistíðinda. (34)

1. mál, hervernd Íslands

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti! Ég hafði ekki ætlað mér að greiða atkv. hér á þingi fyrr en ég hefði siðferðilegt umboð til þess frá kjósendum í N.-M. Það hef ég raunar ekki enn. En með símskeytum í gær og í dag hef ég frétt, að það liggi fyrir, og mun ég því greiða atkv. og segi já.