21.05.1942
Sameinað þing: 19. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 71 í D-deild Alþingistíðinda. (1130)

134. mál, stjórnarskrárnefnd

Forseti (GSv):

Ég tel ekki, að í þessu sambandi þurfi forsetaúrskurð um þetta. Brtt. er komin fram, og afbrigði hafa verið leyfð fyrir henni, og hún liggur fyrir til umr. og afgreiðslu. Afgreiðsla hennar sýnir, hvort hv. þm. vilja fallast á þetta á sínum tíma. En það hafa. ekki verið taldir nema fjórir flokkar á Alþ.; það fer ekki dult, að það þarf ekki forsetaúrskurð um það.