31.03.1942
Sameinað þing: 5. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í D-deild Alþingistíðinda. (1402)

54. mál, kaup á hlutabréfum Útvegsbanka Íslands h/f

*Viðskmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta mál hefur verið áður flutt hér á þingi, eins og hv. flm. sagði. Síðast var það til meðferðar á þingi í fyrra. Þá var samþ., að fram skyldi fara nokkur athugun á málinu. Ég vissi ekki, að málið var á dagskrá í dag og hef því ekki með mér niðurstöður þeirrar athugunar, sem fram átti að fara um þetta. Ég legg til, að málinu verði vísað til fjvn., og er þá hægt að láta koma fyrir hana, áður en málið verður aftur rætt hér, þær niðurstöður, sem aflað var frá því í fyrra.