09.05.1942
Efri deild: 53. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í B-deild Alþingistíðinda. (1451)

69. mál, tekjuskattur og eignarskattur

*Frsm. (Magnús Jónsson):

Ég vil aðeins láta það álit mitt í ljós, að ég tel ekki ástæðu til þess, að málið verði fyrir töfum vegna þessarar brtt., sem hér liggur fyrir. Ég tel því heppilegast, að þessi brtt. verði felld, og mun verða við áskorun hæstv. fjmrh. um að greiða atkv. á móti henni. Ég skal geta þess, að ég hefði gjarnan viljað bera fram 2–3 brtt. við frv., en lét það ógert, vegna þess að ég álít, að ekki megi tefja málið.