24.04.1942
Sameinað þing: 8. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í D-deild Alþingistíðinda. (1531)

83. mál, brimbrjótur í Bolungavík

Flm. (Sigurður Kristjánsson):

Herra forseti ! Í samráði við og eftir tilmælum hæstv. forseta mun ég láta nægja á þessu stigi málsins að vísa til þeirrar stuttu grg., sem þáltill. fylgir. En að sjálfsögðu mun ég gefa þeirri n., væntanlega hv. fjvn., sem um málið fjallar, þær skýrslur og upplýsingar, sem ég hef um málið, og þá hæstv. Alþ., þegar álit hv. fjvn. kemur um málið.

Að svo mæltu óska ég, að þáltill. verði vísað til hv. fjvn. og umr. frestað.