03.09.1942
Sameinað þing: 13. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í D-deild Alþingistíðinda. (1041)

78. mál, milliþinganefnd atvinnumála o.fl.

Frsm. (Finnur Jónsson) :

Þessi till. er samkomulagstill. frá allshnm. af öllum flokkum og fer í þá átt, að athugað sé á milli þinga, hvort ekki sé hægt að finna grundvöll fyrir því, að friður komist á um skipun þeirra mála, er í till. greinir. Nm. eru á eitt sáttir um skipun milliþn. og mæla eindregið með, að till. verði samþ. Einn nm. hefur þó sérstöðu um 3. lið till., en þar sem við viljum leggja áherzlu á, að till. nái fram að ganga á þessu þingi, vona ég, að hv. 1. þm. N.-M. geymi sér til síðari umr. að skýra sérstöðu sína.