21.08.1942
Neðri deild: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í B-deild Alþingistíðinda. (182)

7. mál, dómnefnd í verðlagsmálum

Eysteinn Jónsson:

Ég kann ekki við slík brigzlyrði í garð framsóknarmanna, er fjmrh. hafði hér í frammi áðan, og ég vil ekki láta þeim ómótmælt í þingtíðindunum. Fjmrh. veit það vel, að við höfum ekki tafið fyrir frv. þessu, og það sést bezt á því, að við framsóknarmenn fórum fram á það í Ed., að afgr. allar 3 umr. í einu, en því var neitað. Ég get og lýst yfir því fyrir hönd þeirra framsóknarmanna, er hafa beðið um orðið, þó að ég hafi ekki talað um það við þá, að þeir munu allir falla frá orðinu, til þess að málið verði afgr. nú þegar í stað.