08.09.1942
Efri deild: 27. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í B-deild Alþingistíðinda. (870)

Starfslok deilda

Einar Árnason:

Ég vil í nafni hv. d. þakka hæstv. forseta starf hans á þessu þingi. Hann hefur stjórnað störfum deildarinnar með réttsýni og lipurð í hvívetna, og hann hefur ætíð verið boðinn og búinn til þess að greiða úr óskum manna, svo að þeir mættu vel við una.

Ég bið hv. þdm. að rísa úr sætum sínum til að þakka hæstv. forseta. [Deildarmenn risu úr sætum.]