09.09.1942
Neðri deild: 25. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 446 í B-deild Alþingistíðinda. (872)

Starfslok deilda

forseti (EmJ) :

Ég vil nota þetta tækifæri, áður en störfum er slitið, til að þakka öllum hv. þdm. vinsamlegt og gott samstarf og það umburðarlyndi, sem þeir hafa sýnt mér óvönum, og þar með auðveldað fundarstjórnina. Ég vil árna þdm. góðs gengis og allra heilla.