17.08.1942
Sameinað þing: 5. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í D-deild Alþingistíðinda. (954)

8. mál, úthlutun bifreiða

Helgi Jónasson:

Í Nd. bar ég fram till. á síðasta þingi í þessa átt, en þá varð sú breyt., sem kunnugt er, að þjóðstjórnin veik úr sæti, núv. stjórn tók við. Það varð til þess, að ég breytti till. minni, og fór þá svo, að hún komst ekki í gegn, varð óútrædd, og eins gæti farið nú, ef stjórnarliðar sjá sér hag í að freista að tefja hana.