25.03.1943
Efri deild: 81. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1233 í B-deild Alþingistíðinda. (2189)

111. mál, rithöfundarréttur og prentréttur

Gísli Jónsson:

Með tilvísun til þess, að samþykkt þessa frv. er í raun og veru vantraust á ríkisstj. um að inna af hendi það verk, sem sameinað Alþ. hefur ákveðið að fela henni, og jafnfram með tilvísun til þess, hv. þm. Str. virðist hafa fengið dagskrártill. fellda með fölskum rökum, segi ég nei.

Á 83. fundi í Nd., s.d., skýrði forseti frá, að sér hefði borizt frv. frá Ed., eftir 3. umr. þar.