11.02.1943
Efri deild: 54. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í C-deild Alþingistíðinda. (2716)

118. mál, jöfnunarsjóður vinnulauna

Gísli Jónsson:

Herra forseti. — Ég á hér frv. á þskj. 241 118. mál, sem var afgr. til allshn. 22. f.m. Með því að þetta mál er mjög aðkallandi, vil ég vænta þess, að hæstv. forseti sæi sér fært að sjá svo um, að n. skilaði áliti sem allra fyrst.