27.01.1943
Efri deild: 42. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í C-deild Alþingistíðinda. (2777)

120. mál, kynnisferð sveitafólks

Brynjólfur Bjarnason:

Ég á illt með að skilja, ef hv. þm. vilja á annað borð sinna þessari hugmynd, að þeir láti sig muna um að hafa upphæðina eins ríflega og gert er ráð fyrir í þessari brtt. En hins vegar, ef flm. telja einhvern vafa á því, að frv. komist í gegn með þessari hækkun, þá er sjálfsagt að taka það til greina. Ég vildi þess vegna verða við tilmælum hv. þm. að taka þessa brtt. aftur til 3. umr.