16.12.1942
Sameinað þing: 9. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í D-deild Alþingistíðinda. (3222)

9. mál, flutningur á langleiðum

Frsm. (Gísli Sveinsson):

Allshn. hefur haft þetta mál til meðferðar og komizt að þeirri niðurstöðu, að nauðsyn bæri til að rannsaka, hvernig vöru- og nauðsynjaflutningum á langleiðum á landi verði sem bezt fyrir komið, og að rannsóknin fari fram sem fyrst.

Þegar þessi till. var borin fram, var gerð grein fyrir nauðsyn þessa máls, og þykir ekki þörf á að fara að endurtaka það nú, ef ekki verða neinar umr. til að gefa tilefni til þess.

N. leggur það sem sagt einróma til, að þáltill. verði samþ. óbreytt eins og hún er á þskj. 9.