29.01.1943
Sameinað þing: 17. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í B-deild Alþingistíðinda. (485)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1943

Bjarni Ásgeirsson:

Ég vil þakka hv. 2. þm. Reykv. fyrir það, að hann hefur slegið föstu skilningi mínum og annarra þm. um það, að till. hafi verið í tveim liðum. Annar liðurinn var um það að fresta umr. og hinn um að vísa málinu til n., eins og við skildum það, en við fengum ávítur fyrir hjá hv. 5. þm. Reykv. Nú er fallinn um það flokksdómur hjá hv. 2. þm. Reykv., að skilningur okkar hafi verið réttur.