15.02.1943
Sameinað þing: 26. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 470 í B-deild Alþingistíðinda. (636)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1943

Garðar Þorsteinsson:

Ég vil benda hæstv. forseta á, að greinin hér á þskj. 410 telur upp, hverjir eigi að fá þær upphæðir, sem þar greinir, og svo kemur hrein viðbót í þessum brtt. á þskj. 419, sem eru kennararnir. Samþykkt þessara brtt. á þskj. 419 breytir því engu um laun þeirra, sem taldir eru á þskj. 410, XXXIII, og eru brtt. 419. XXV og XXVI því viðaukatill., sem eiga að berast upp fyrst.