17.03.1943
Efri deild: 74. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 556 í B-deild Alþingistíðinda. (776)

116. mál, húsaleiga

Forseti (StgrA):

Sé það ætlun allshn. að taka málið til frekari athugunar, finnst mér sjálfsagt að verða við þessari beiðni. Hins vegar skildist mér á hæstv. félmrh., að hann reiknaði ekki með, að það yrði tekið til frekari athugunar, og þess vegna tók ég það á dagskrá. En sem sagt, ef það er ætlun n. að taka málið fyrir, mun ég verða við því að taka málið út af dagskrá.