07.04.1943
Neðri deild: 92. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 660 í B-deild Alþingistíðinda. (907)

140. mál, dýrtíðarráðstafanir

Forseti (JJós):

Ég hef heyrt óskir þær, sem hv. 4. þm. Reykv. bar fram um atkvgr. um brtt., þegar þar að kemur. Ég get ekki sagt neitt ákveðið um það, en lofa, að það verði tekið til athugunar í samráði við aðra aðila málsins.