25.11.1943
Sameinað þing: 36. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í B-deild Alþingistíðinda. (128)

27. mál, fjárlög 1944

Forseti (GSv):

Hv. þm. Snæf. (GTh) hefur nú lokið máli sínu, og er þar með lokið 2. umferð þessara útvarpsumræðna, með því að hæstv. ríkisstj. hefur tjáð mér, að hún noti ekki þann ræðutíma, sem henni var ætlaður.

Hefst þá þriðja og síðasta umferðin, og hefur hver aðili rétt á 10 mínútna ræðutíma. Röð flokkanna verður hin sama og áður, og tekur þá til máls hv. þm. V.-Sk., Sveinbjörn Högnason, sem talar af hálfu Framsfl.