23.11.1943
Efri deild: 54. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 751 í B-deild Alþingistíðinda. (1382)

163. mál, útsvarsinnheimta 1944

Frsm. (Bjarni Benediktsson):

Ég sé ekki ástæðu til að fresta þessari umr. vegna þessa atriðis, sem hv. þm. Barð. minnist á. Ég veit ekki betur en þeir tveir nm., sem gátu ekki verið á fundi, séu okkur hinum sammála. Brtt. er alveg eins vel hægt að koma með við 3. umr. eins og nú. Ég sé því ekki ástæðu til að draga nál. til baka.