15.12.1943
Efri deild: 66. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í C-deild Alþingistíðinda. (1849)
28. mál, kynnisferðir sveitafólks
Eiríkur Einarsson:
Í sjálfu sér er ég ekki mótfallinn þessari till., sem fjallar um, að greiða eigi sveitafólki fé úr ríkissjóði, í stað þess að taka þetta fé af því sjálfu, en af þeirri ástæðu, að ég hef ekki álit á málefninu í heild, segi ég nei.
Frv. fellt með 5:3 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu
já: ÞÞ, HG, PHerm.
nei: BBen, EE, GJ, LJóh, MJ.
BrB, BSt, HermJ, IngP, StgrA greiddu ekki atkv.
4 þm. (GÍG, JJ, KA, PM) fjarstaddir.
1 þm. gerði grein fyrir atkv.: