29.10.1943
Sameinað þing: 23. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í D-deild Alþingistíðinda. (2557)

67. mál, vegagerð yfir Hellisheiði og Svínahraun

Frsm. meiri hl. (Ingólfur Jónsson) :

Herra forseti. Þáltill. þessi hefur verið athuguð í fjvn., og hefur n. ekki getað orðið sammála urr. afgreiðslu hennar að öllu leyti. Nokkrir nm. hafa áskilið sér rétt til þess að bera fram brtt. eða vera með brtt., sem fram kunna að koma. Einn nm., hv. 2. þm. N.-M., hefur skorið sig frá n. og borið fram sérstakt nál. á þskj. 209. Ég ætla ekki að svo stöddu að gera það nál. hans að umræðuefni. Ég geri ráð fyrir, að hann geri grein fyrir sínu áliti, og gefst mér þá kostur á því á eftir að ræða það, ef þörf þykir.

Að öðru leyti vil ég fyrir hönd meiri hl. fjvn. vísa til þess, sem bæði ég og aðrir flm. þessarar þáltill. sögðu við fyrri umr. málsins, og tel ég óþarft að svo stöddu að bæta við það, enda legg ég til, að till. verði samþ. óbreytt.