15.12.1943
Efri deild: 66. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 258 í D-deild Alþingistíðinda. (3277)

180. mál, jarðræktarmál

Flm. (Eiríkur Einarsson):

Herra forseti. Ég ætla að láta nægja að vísa til till. sjálfrar og grg. okkar flm.

Margar till. hafa komið fram og margar afgreiddar, sem miða að víðtækum umbótum landbúnaðarins, vélakaupum og þess háttar. — Þessi till. er skorðuð við framræslu mýra og fer þess á leit, að Búnaðarfélagið og ríkisstj. taki höndum saman um að hrinda málinu í framkvæmd. Ég vænti, að svo mikilsverð till. sem þessi fái samþykki. Tel ég hana eiga fullan rétt á sér og þurfi ekki nánari útskýringa. Hún mælir með sér sjálf að öllu leyti.