16.12.1943
Sameinað þing: 44. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í D-deild Alþingistíðinda. (3368)

191. mál, lækka verð á vörum innan lands

Sigurður Bjarnason:

Enda þótt ég sé þeirri stefnu mótfallinn, að haldið verði áfram að borga niður dýrtíðina, en álíti, að sú dýrtíðarráðstöfun ein sé raunhæf, sem felst í hlutfallslegri lækkun verðlags og kaupgjalds, treysti ég mér ekki til þess að snúast gegn þessari till. Með því að ég tel þessa leið einungis verða farna til bráðabirgða, segi ég já við till.