16.12.1943
Sameinað þing: 45. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í D-deild Alþingistíðinda. (3386)

103. mál, radioviti og miðunarstöð

Jóhann Jósefsson:

Það er ekki um annað að ræða fyrir mig en sætta mig við það, sem fjvn. hefur ályktað um þetta mál, þar eð það er byggt á áliti fagmanna um slík verk, enda þótt álit þeirra sé ekki samhljóða áliti sjómanna, sem hafa barizt fyrir að fá þetta síðan 1935. En þetta virðist eiga erfitt uppdráttar hjá þeim, sem í landi sitja, og þótt ég sætti mig við þetta, þá er ég óánægður fyrir hönd þeirra manna, sem telja þetta nauðsynjamál og kosta kapps um að hrinda því í framkvæmd.