24.11.1943
Neðri deild: 53. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 475 í B-deild Alþingistíðinda. (552)

36. mál, kjötmat o.fl.

Páll Zóphóníasson:

Það er eitt mál, sem mig langar að spyrja um, sem kemur mér ekki beint við og er flutt af ríkisstjórninni. Það er um kjötmat. Það er búið að ganga gegnum þessa deild og Ed. og komið þaðan, en hefur ekki komið fram hér, þótt liðnar séu upp undir það þrjár vikur síðan það kom frá Ed.

Er það vilji ríkisstj., að málið sé látið kafna, eða af hvaða ástæðum er það ekki tekið á dagskrá hér í deildinni?