07.12.1943
Sameinað þing: 39. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 478 í B-deild Alþingistíðinda. (568)

36. mál, kjötmat o.fl.

Frsm. Nd.-nefndar (Jón Sigurðsson):

Þetta frv. hefur hrakizt milli deilda, en ekki náðst samkomulag um það. Ed. hefur enn sett þá brtt. fram, að í þessum l. skuli ákveðið svo, að gera skuli ráðstafanir til að tryggja það, sem hún nefnir „eðlilegan verðmun“ á tegundum og gæðaflokkum kjötsins í útsölu.

Landbn. Nd. hefur litið svo á, að ákvæði um verðlag eigi ekki heima í þessu frv. Þess vegna teljum við réttara, að þetta sé ekki þar, en eðlilegra, að flutt verði brtt. við l. um verðlag á kjöti. Við leggjum því til, að niðurlagsgr. falli burt, og leggjum fram skrifl. brtt. um það.