09.02.1945
Efri deild: 123. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 753 í B-deild Alþingistíðinda. (1050)

278. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1945

Frsm.. (Bjarni Benediktsson):

Hv. allshn. hefur nú haft þetta mál til meðferðar og gefið út um það nál. á þskj. 1086, og þar er í raun og veru allt það sagt, sem um þetta mál er að segja. Eins og nú er komið, er alveg sjálfsagt að fresta samkomudegi þingsins til hausts og með öllu ástæðulaust að ákveða hann fyrr en 1. október.