06.12.1944
Efri deild: 83. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1169 í B-deild Alþingistíðinda. (2233)

110. mál, sala nokkurra opinbera jarða

Frsm. (Eiríkur Einarsson):

Herra forseti. — Það er að vísu óþarfi, en ég vil þó aðeins taka það fram, að samkv. hinni nýframkomnu skrifl. brtt. eiga þrír fyrstu liðir frv. að falla niður og aðeins fjórði liður að standa eftir.

Ég vil leyfa mér að endurtaka, að við hinir nm. leggjum til, að frv. verði samþ. óbreytt eins og það er, og ber því að fella þessa brtt. eins og hún liggur fyrir.