04.12.1944
Neðri deild: 86. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í C-deild Alþingistíðinda. (2685)

104. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum

Gísli Sveinsson:

Ég hef hér ekki miklu við að bæta. Ég sé, að n. hefur ófyrirsynju beiðzt þess, að brtt. yrðu teknar aftur til 3. umr. N. hefur þrátt fyrir alla þessa fresti ekki getað gert sér neina grein fyrir þeim. Þær eru þó ekki þyngri í vöfum en frv. sjálft.

Ég ætla svo ekki að halda hér uppi neinu málþófi, en fellst á, að brtt. komi til atkvgr., og vænti þess, að hv. dm. sjái um, að þessu máli reiði vel af við þessa lokaatkvgr.