02.12.1944
Efri deild: 80. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 558 í C-deild Alþingistíðinda. (3730)

155. mál, nýbyggingarsjóður útvegsmanna

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. — Ég skal ekki vera langorður að þessu sinni, en óska þess, að umr. um þetta mál verði frestað. Ég mun taka frv. til athugunar í n. á ný, sérstaklega það atriði, sem ég ræddi áður, hvort það kemur í bága við ákvæði stjórnarskrárinnar. Óska ég þess, að umr. verði frestað, svo að okkur gefist tækifæri til þess að athuga frv. á ný.