22.02.1945
Neðri deild: 136. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1921 í B-deild Alþingistíðinda. (4960)

257. mál, veltuskattur

Forseti (JörB):

Út af ummælum hv. þm. V.- Húnv. skal ég láta þess getið, að þess hefur verið óskað af hálfu hæstv. ríkisstj., að afgreiðslu þessa máls verði hraðað, sem er heldur ekkert tiltökumál, og á ég ekki annars kost en að láta ganga til atkv. um þessa till., þó að svo fari, að ekki verði mælt fyrir henni, nema hún verði tekin aftur.