15.12.1944
Sameinað þing: 76. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 487 í D-deild Alþingistíðinda. (5327)

215. mál, framkvæmdir á Rafnseyri

Flm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég vil aðeins taka fram, að ég hef ekkert sagt um, að fjvn. hafi á einn eða annan hátt útkljáð neitt sérstakt í þessu máli, heldur að Alþ. hafi nú þegar tekið ákvörðun á grundvelli þeirrar grg., sem fyrir lá. Þetta hefur Alþ. gert, en fjvn., sem er að vísu mesta n. þingsins, stendur þar ekki yfir um ákvarðanir. Að öðru leyti skal ég ekki fara lengra út í þetta mál, en ef hv. 7. þm. Reykv. ætlar að byggja mál sitt á því, að Arnarfjörður sé eins breiður eða breiðari en Faxaflói, þá býst ég við, að árangurinn verði eftir því.