12.02.1945
Neðri deild: 127. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2018 í B-deild Alþingistíðinda. (5571)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Sveinbjörn Högnason:

Það má vel vera, að hægt sé að ljúka umr. um þessi mál nú. En vegna þess að margir þm. hafa fjarvistarleyfi úr bænum, auk hv. 2. þm. N.--M. eru fjarverandi þm. Borgf., fyrri þm. Árn. o.fl. og sumir hverjir við þetta mál riðnir, finnst mér ástæðulaust að afgreiða málið í dag. Ég tek því undir ósk þess manns, sem bað um frestun, ekki sízt, þar sem hann mun sjaldnast vera fjarverandi úr þinginu.