27.01.1944
Sameinað þing: 10. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2041 í B-deild Alþingistíðinda. (5758)

Þormóðsslysið

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Mér finnst ekki viðeigandi af hv. þm. að blanda mér inn í þetta mál.

Og auk þess er það ekki rétt. En ég vil segja út af því, sem hann sagði, að þessar áminnztu greinar hafa ekki verið bornar undir mig, sem ekki var heldur við að búast. Þess vegna hef ég hvorki gefið samþykki mitt né synjun um birtingu þeirra. Hitt er annað mál, hvort ég er sammála því, sem í þeim stendur, og þykist ég ekki þurfa að standa hv. þm. Barð. skil á því.