16.02.1945
Sameinað þing: 95. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 647 í D-deild Alþingistíðinda. (5828)

284. mál, leiga á færeyskum skipum o.fl.

Pétur Ottesen:

Mér þykir vænt um, að hæstv. atvmrh. skuli nú hafa tekið aftur það, sem hann var að halda fram um mína afstöðu í þessu máli. Það er svo fjarri því, að ég sé við þessa till. riðinn, að ég hef ekki borið hana fram, og ég hef ekki einu sinni samið hana, og hef ég gert grein fyrir því í d. Hæstv. ráðh. reyndi að snúa út úr fyrir mér í þessu efni, en nú hefur hann séð að sér og tekið aftur það, sem hann sagði, og er það góður endir á okkar skiptum.