10.03.1944
Neðri deild: 31. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2054 í B-deild Alþingistíðinda. (6394)

Þingfrestun

forseti (JörB):

Þar sem horfur munu á því, að þetta verði síðasti fundur þessarar hv. d. að þessu sinni fyrir þingfrestun, þá vil ég þakka hv. þdm. fyrir gott samstarf. Óska ég þeim á komandi tíð allra heilla, og utanbæjarþingmönnum óska ég góðrar heimferðar og góðrar heimkomu.