02.03.1945
Neðri deild: 142. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2063 í B-deild Alþingistíðinda. (6438)

Starfslok deilda

Forsrh. (Ólafur Thors):

Ég vil þakka hæstv. forseta hlýjar óskir og ummæli, og ég veit, að ég nú sem fyrr mæli fyrir hönd allra þdm., þegar ég þakka forseta góða og röggsama stjórn á fundum þessarar þingdeildar. — Ég vil svo óska hæstv. forseta og öllum þdm. góðrar heimferðar og vænti, að við megum hittast hér heilir, þegar kallið kemur. Vil ég svo biðja hv. þdm. að heiðra hæstv. forseta með því að rísa úr sætum sínum. [Deildarmenn risu úr sætum.]