11.12.1944
Sameinað þing: 74. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í B-deild Alþingistíðinda. (645)

143. mál, fjárlög 1945

Páll Zóphóníasson:

Þar sem ég veit ekki til þess, að hæstv. ríkisstj. hafi heimild samkv. fjárlögum til að kaupa strandferðaskip, og sé því ekki, á hverju grg. hæstv. forsrh. er byggð, segi ég já.