01.10.1945
Sameinað þing: 1. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (1)

Forseti Íslands setur þingið

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til alþingishússins, fundarsals neðri deildar. Þessir þingmenn voru til þings komnir:

1. Áki Jakobsson, þm. Siglf.

2. Ásgeir Ásgeirsson, þm. V.-Ísf.

3. Barði Guðmundsson, 5. landsk. þm.

4. Bernharð Stefánsson, 1. þm. Eyf.

5. Bjarni Ásgeirsson, þm. Mýr.

6. Bjarni Benediktsson, 6. þm. Reykv.

7. Björn Kristjánsson, þm. N.-Þ.

8. Brynjólfur Bjarnason, 5. þm. Reykv.

9. Eiríkur Einarsson, 2. þm. Árn.

10. Emil Jónsson, þm. Hafnf.

11. Eysteinn Jónsson, 2. þm. S.-M.

12. Finnur Jónsson, þm. Ísaf.

13. Garðar Þorsteinsson, 2. þm. Eyf.

14. Gísli Jónsson, þm. Barð.

15. Gísli Sveinsson, 10. landsk. þm.

16. Guðmundur Í. Guðmundsson, 9. landsk. þm.

17. Gunnar Thoroddsen, þm. Snæf.

18. Hallgrímur Benediktsson, 3. (vara) þm. Reykv.

19. Haraldur Guðmundsson, 3. landsk. þm.

20. Hermann Jónasson, þm. Str.

21. Ingólfur Jónsson, 2. þm. Rang.

22. Ingvar Pálmason, 1. þm. S.-M.

23. Jóhann Jósefsson, þm. Vestm.

24. Jón Pálmason, þm. A.-Húnv.

25. Jónas Jónsson, þm. S.-Þ.

26. Jörundur Brynjólfsson, 1. þm. Árn.

27. Katrín Thoroddsen, 2. (vara)þm. Reykv.

28. Kristinn E. Andrésson, 7. landsk. þm.

29. Lárus Jóhannesson, þm. Seyðf.

30. Magnús Jónsson, 1. þm. Reykv.

31. Ólafur Thors, þm. G.-K.

32. Páll Zóphóníasson, 2. þm. N.-M.

33. Páll Þorsteinsson, þm. A.-Sk.

34. Pétur Magnússon, 8. landsk. þm.

35. Sigfús Sigurhjartarson, 8. þm. Reykv.

36. Sigurður Guðnason, 1. landsk. þm.

37. Sigurður E. Hlíðar, þm. Ak.

38. Sigurður Kristjánsson, 7. þm. Reykv.

39. Sigurður Thoroddsen, 11. landsk. þm.

40. Sigurður Þórðarson, 1. þm. Skagf.

41. Skúli Guðmundsson, þm. V.-Húnv.

42. Stefán Jóh. Stefánsson, 4. þm. Reykv.

43. Steingrímur Aðalsteinsson, 4. landsk. þm.

44. Sveinbjörn Högnason, þm. V.-Sk.

45. Þorsteinn Þorsteinsson, þm. Dal.

46. Þóroddur Guðmundsson, 2. landsk. (vara)þm.

Voru framantaldir þingmenn allir á fundi, nema 2. þm. Árn. En ókomnir voru til þings :

1. Helgi Jónasson, 1. þm. Rang.

2. Jón Sigurðsson, 2. þm. Skagf.

3. Lúðvík Jósefsson, 6. landsk. þm.

4. Páll Hermannsson, 1. þm. N.-M.

5. Pétur Ottesen, þm. Borgf.

6. Sigurður Bjarnason, þm. N.-Ísf.

Forseti Íslands setur þingið.

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis, kom forseti Íslands, Sveinn Björnsson, inn í salinn og gekk til ræðustóls.

Forseti Íslands (Sveinn Björnsson): Í ríkisráði 13. f. m. var gefið út svo látandi forsetabréf um, að reglulegt Alþingi 1945 skuli koma saman til fundar mánudaginn 1. október 1945:

Forseti Íslands gerir kunnugt:

Að ég hef ákveðið, samkvæmt lögum nr. 35 12. febrúar 1945, að reglulegt Alþingi 1945 skuli koma saman til fundar mánudaginn 1. október n. k.

Um leið og ég birti þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett eftir að guðsþjónusta hefur fram farið í dómkirkjunni, og hefst hún kl. 13,30.

Gert í Reykjavík, 13. sept. 1945.

Sveinn Björnsson.

Ólafur Thors.

Samkvæmt bréfi því, er ég hef nú lesið, lýsi ég yfir því, að Alþingi Íslendinga er sett, hið fyrsta þing, sem kvatt er til funda eftir stofnun lýðveldis á Íslandi að nýju. Frá stofnun Alþingis eru nú liðin 10–15 ár. Frá endurreisn þess fyrir 100 árum hefst nú 79. samkoma þess, en frá því, er það fékk aftur í hendur löggjafarvald fyrir rúmum 70 árum, er þetta 64. þing í röðinni, en 48. aðalþing.

Ég vil biðja alþingismenn að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum sínum.

[Þingheimur stóð upp, og forsætisráðherra (ÓTh) mælti: „Lifi Ísland“. Var tekið undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]

Samkv. 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna fundi, þar til kosinn hefur verið forseti sameinaðs þings.