20.03.1946
Efri deild: 88. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1126 í B-deild Alþingistíðinda. (1900)

175. mál, einkaleyfi

Frsm. (Guðmundur I. Guðmundsson) :

Herra forseti. Allshn. hefur haft frv. þetta til athugunar. Frv. gengur út á, eins og kunnugt er, að framlengja frest um veitingu einkaleyfa, sem ekki hafa notazt til fulls vegna stríðsáranna. Þar sem hér er ekki um annað að ræða en framlengingu á fresti í sambandi við verndun einstaklingsréttinda, leggur nefndin til, að frv. verði samþ. óbreytt.