23.11.1945
Efri deild: 36. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1663 í B-deild Alþingistíðinda. (2442)

105. mál, íbúðarhúsabyggingar í kaupstöðum og kauptúnum

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Það er nú ekki vonum fyrr, að spurt er um þetta. En ýmsar ástæður eru fyrir þessum drætti, og skal ég ekki frekar um þær fjölyrða, ef þess er ekki óskað, en nefndin hélt fund í morgun og heldur fund á morgun, og verður málið væntanlega tilbúið frá n. næstu daga.