05.04.1946
Neðri deild: 103. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1612 í B-deild Alþingistíðinda. (3529)

141. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Jóhann Jósefsson:

Þar eð ég er einn af höfundum hins upphaflega frv., þá hlýðir, að ég geri grein fyrir ástæðunni til þess, að ég greiði atkv. eins og nú skal gert. Ég hef þótt sjá, að eina leiðin til þess að fá málinu framgengt, sé sú, að stofnlánadeildin væri hjá Landsbankanum, og því segi ég já.