27.04.1946
Efri deild: 115. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 124 í C-deild Alþingistíðinda. (4182)

135. mál, atvinnudeild háskólans

Jónas Jónsson:

Ég er í menntmn., og ég vil taka fram, að ég hef aldrei orðið var við þetta frv. Það hefur aldrei verið kallaður saman fundur um það. Ég get alls ekki verið á fundi í dag, en get tilkynnt það nú þegar, að ég er algerlega á móti frv., tel það skrípaleik og alla þess meðferð.