29.04.1946
Neðri deild: 129. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í C-deild Alþingistíðinda. (4533)

50. mál, ríkisborgararéttur

Jörundur Brynjólfsson:

Allshn. Nd. hafði lagt til, að þeir menn fengju ríkisborgararétt, sem hv. Ed. felldi burt. Og þótt vafi sé á, að málið nái fram að ganga, vil ég heldur hætta á það, að þeir bíði síns réttar, sem nú eru eftir orðnir, en að þannig sé gert upp á milli þessara manna og segi því já.