06.11.1945
Neðri deild: 22. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 161 í C-deild Alþingistíðinda. (4563)

54. mál, vernd barna og ungmenna

Bjarni Ásgeirsson:

Ég hef ekki orðið var við, að frá n. þeirri, sem hefur athugað þetta mál, hafi komið nokkur skýring, heldur hefur málinu verið hraðað gegnum þingið. Þetta er stór lagabálkur, og ég hef ekki átt kost á að kynna mér þetta mál svo til hlítar, að ég treysti mér til að taka afstöðu um það með eða móti, og sit því hjá.