21.03.1946
Efri deild: 89. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 685 í B-deild Alþingistíðinda. (694)

3. mál, Tunnuverksmiðja á Siglufirði

Gísli Jónsson:

Með tilvísun til þeirra upplýsinga, sem fram hafa komið, vil ég endurnýja ósk mína um, að þessar upplýsingar liggi fyrir áður en 3. umr. fer fram, en ég mun að sjálfsögðu ekki greiða atkv. á móti frv. við þessa umr. hér í deildinni.